Fréttir
-
Miðvikudagur, 27. febrúar 2013Skriða og fjara
Sagan af klaustrinu á Skriðu eftir Steinunni Kristjánsdóttur fékk Fjöruverðlaunin góðu í flokki fræðirita. Sú viðurkenning er enn ein rósin í hnappagat höfundarins. Sögufélag óskar Steinunni hjartanlega til hamingju með verðlaunin og óskar henni frekari velfarnaðar á fræðasviði sínu. Bókin er nánast uppseld og fer hver að verða síðastur að eignast eintak.
-
Miðvikudagur, 30. janúar 2013Bókafundur 7. febrúar
Bókafundur Sagnfræðingafélagsins, Sögufélags og ReykjavíkurAkademíunnar verður haldinn fimmtudaginn 7. febrúar kl. 20:00 í húsakynnum ReykavíkurAkademíunnar, Hringbraut 121 4. hæð 101 Reykjavík.
-
Miðvikudagur, 12. desember 2012Hausthefti Sögu, tímarits Sögufélags, er komið út.
Hausthefti Sögu, tímarits Sögufélags, er komið út. Að venju er tímaritið vandað og fróðlegt. Saga færir lesendum nýjar rannsóknir á liðinni tíð auk umfjöllunar um ýmis efni sem eru ofarlega á baugi í sagnfræði og skyldum greinum.
-
Laugardagur, 1. desember 2012Sagan af klaustrinu á Skriðu tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Sögufélag óskar Steinunni Kristjánsdóttur til hamingju með tilnefninguna til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
- 1 of 7
- ››

