Saga: Tímarit Sögufélags
Tímaritið Saga leggur metnað sinn í að fjalla um nýlega útkomin rit sem tengjast sögu Íslands eða íslenskum fræðaheimi. Til að ná þessu markmiði birtir tímaritið þrenns konar umfjallanir um bækur: a) ítardóma þar sem nokkur rit eru borin saman í lengra máli, b) ritdóma um einstök verk, og c) ritfregnir sem ætlað er að vera stutt kynning á mikilvægum sögulegum fræðiritum, s.s. greinasöfnum, ráðstefnuritum, uppsláttarritum, stoðritum og þýddum verkum.
Tímaritið Saga hefur fyrir löngu áunnið sér sess sem fremsta fagtímarit íslenskra sagnfræðinga. Það kemur út tvisvar á ári og í því birtast ritrýndar fræðigreinar á hinum ýmsu sviðum sagnfræði og sögulegra fræða.
Ritstjóri Sögu er dr. Sigrún Pálsdóttir (sigrunpa@simnet.is).
Henni til fulltingis starfar fagleg ritnefnd.
| Ritnefnd Sögu 2009- |
|
| Davíð Ólafsson (Reykjavíkurakademían) |
|
Tímaritið Saga hóf göngu sína árið 1950. Fyrstu árin kom það út í örkum og var nokkrum árlegum arkarútgáfum síðan slegið saman í eitt bindi. Þetta veldur því að merktir árgangar útgáfunnar eru mun færri en útgáfuárin segja til um. Frá áttunda áratug síðustu aldar hefur Saga komið út reglulega, eitt myndarlegt hefti á ári hverju. Árið 2002 hóf Saga að koma út í tveimur heftum árlega, að vori og hausti. Efnisyfirlit og útdrætti greina eldri hefta má finna hér. Að fráskildum nýjustu árgöngum er Saga einnig aðgengileg á www.timarit.is.
Ný saga. Árin 1987-2001 gaf Sögufélag út tímaritið Nýja sögu. Tímaritið hóf á sínum tíma göngu sína að frumkvæði ungra sagnfræðinga í Sögufélagi. Markmið útgáfunnar var að ná til víðari hóps lesenda en tekist hafði með Sögu; að því átti m.a. að stuðla nýstárleg hönnun og birting mynda. Ný saga kom út til ársins 2001, alls 13 árgangar. Þegar Saga fór að koma út tvisvar á ári var útgáfu Nýrrar sögu hætt. Líkt og með Sögu er Ný Saga aðgengileg á www.timarit.is og efnisyfirlit og útdrætti má finna hér.

