|
Fréttasafn
25.1.2012
Jón forseti allur? Hlýtur
Bókmenntaverðlaunin í flokki fræðirita og bóka almenns eðlis.
Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti í dag Íslensku
bókmenntaverðlaunin 2011 við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Verðlaunin
hlaut í flokki fagurbókmennta Guðrún Eva Mínervudóttir fyrir skáldsöguna
Allt með kossi vekur, gefin út af JPV útgáfu, og í flokki fræðirita og
bóka almenns efnis Páll Björnsson sagnfræðingur fyrir bókina Jón forseti
allur? Táknmyndir þjóðhetju frá andláti til samtíðar sem Sögufélagið
gefur út. Þetta er í tuttugasta og þriðja skiptið sem verðlaunin eru
afhent en fyrst var tilnefnt til þeirra árið 1989.
Bókamarkaður - Fræðirit fyrir fróðleiksfúsa
Bókamarkaður Hins íslenska bókmenntafélags og
Sögufélags verður haldinn í Skeifunni 3b, dagana 18. til 27.
janúar.
Hundruð bókatitla Allar bækur eru á
30 til 70% afslætti, þar á meðal Lærdómsrit, Íslensk fornrit,
sagnfræðirit, heimspeki ofl. Sérvaldir titlar á enn meiri afslætti
eða allt niður í 50 krónur.
Opið 9-18 virka daga, laugardag kl.
11 til 16 og sunnudag frá 13 til 16.
Allir fá bókagjöf.
31.10.2011
Nýr forseti Sögufélags

Á
aðalfundi Sögufélags þann 29. október var sagnfræðingurinn Guðni Th.
Jóhannesson kjörinn forseti félagsins. Guðni tekur við af Önnu
Agnarsdóttur sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs eftir sex ára setu.
Í nýrri stjórn Sögufélags sitja auk Guðna þau Bragi Þorgrímur Ólafsson,
Helgi Skúli Kjartansson, Illugi Gunnarsson og Súsanna Margrét
Gestsdóttir. Varamenn voru kjörnir Helga Jóna Eiríksdóttir og Sverrir
Jakobsson.
26.10.2011
Aðalfundur
Aðalfundur Sögufélags verður haldinn á laugardaginn kemur, 29. október
2011, kl. 15 í húsi félagsins að Fischersundi 3.
Dagskrá:
a) Venjuleg aðalfundarstörf.
Kaffihlé í boði Sögufélags.
b) Erindi dr. Viðars Pálssonar.
Einstaklingurinn og listaverkið.
Hugmyndafræðilegar rætur íslenska skólans
Einstaklingurinn, sköpunargáfan og listaverkið hlutu mikið rúm í
söguskoðun „íslenska skólans“ um og fyrir miðja síðustu öld, og þóttust
menn þar kenna kjarna fornnorrænnar menningar og frumforsendu helstu
afreka hennar. Í fyrirlestrinum verða hugmyndafræðilegar rætur slíkrar
túlkunar hins vegar raktar til mennta- og menningarstrauma á nítjándu
öld—einkum innan hins þýskumælandi heims—fremur en til norrænnar
fortíðar. Færð verða rök að því að merkisberar íslenska skólans, einkum
Einar Ól. Sveinsson og Sigurður Nordal, endurómi grunnstef sem þegar um
miðja nítjándu öld urðu áberandi í fræðilegri umræðu í Evrópu og sóttu
mjög á rétt um það leyti sem Sturlungaöld og Íslenzk menning
voru rituð, tvö öndvegisrit rannsóknarhefðarinnar. Þannig hafi
alþjóðlegar og nútímalegar hugmyndir mótað skilning íslenska skólans á
forníslenskri menningu og bókmenntum með afgerandi hætti.
Loks: léttar veitingar í boði Sögufélags.
Við hvetjum félagsmenn til að mæta og allir eru velkomnir á fyrirlestur
dr. Viðars sem hefst um kl. 16.
Stjórnin
2.10.2011
Aðalfundur Sögufélags
Aðalfundur Sögufélags verður haldinn laugardaginn 29.
október n.k. kl 15. Eftir venjuleg aðalfundarstörf mun Dr. Viðar Pálsson
sagnfræðingur flytja erindi.
Dagskrá fundarins verður nánar auglýst síðar.
8.9.2011
Lokað föstudaginn 9. september.
Afgreiðsla Sögufélags verður lokuð föstudaginn 9.
september.
24.8.2011
Nýr starfsmaður Sögufélags
Sögufélag
hefur ráðið til starfa Ólöfu Dagnýju Óskarsdóttur til að annast daglega
umsýslu félagsins. Ólöf Dagný hefur nýlega lokið meistaraprófi í
stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og hefur sérhæft sig í starfsemi
frjálsra félagssamtaka, opinberri stjórnsýslu og stjórnun. Prófritgerð
hennar er sögulegs efnis og fjallar meðal annars um starfsemi íslenskra
fræðafélaga á nítjándu og fram á tuttugustu öld. Ólöf Dagný býr að
víðtækri reynslu og þekkingu á útgáfustörfum sem og á kynningu, sölu og
dreifingu fræðirita. Hún hefur um árabil starfað hjá Hinu íslenska
bókmenntafélagi og sem verkefnastjóri Heimilis og skóla – landsamtökum
foreldra. Ólöf Dagný er jafnframt fjögurra dætra móðir.
Ólöf Dagný er ráðin í hlutastarfi hjá Sögufélagi og mun hafa umsjón
með bóksölu félagsins, dreifingu Sögu og Andvara, utanumhald um
bókaútgáfu og kynningarmál félagsins auk annarra starfa á vettvangi
félagsins.
Sögufélag býður Ólöfu Dagnýju velkomna til starfa.
1.7.2011
Sumarlokun 1. júlí - 22. ágúst
Verslun Sögufélags verður lokuð
vegna sumarleyfa frá 1. júlí til 22. ágúst. Fyrirspurnir og bókapantanir
sendist á netföngin
annaagn@hi.is og
olr1@hi.is.
Gleðilegt sumar.
6.6.2011
Nú
fara háskólaútskriftir að nálgast.
Af því tilefni býður Sögufélag upp á nokkur spennandi gjafatilboð fyrir
nýútskrifaða fræðinga fram að 18. júní.
Saga Stjórnarráðsins – 5 bindi á 5.000 kr.
Stjórnarráð Íslands 1904-1964 I-II og Stjórnarráð Íslands
1964-2004 I-III.
Helgi Skúli Kjartansson, Ísland á 20. öld. (2. útgáfa) á 8.900
kr., til félagsmanna á 7.900 (bókin kostar 10.900 í búðum).
Safn Sögufélags. Þýdd rit síðari alda um Ísland og Íslendinga.
3000 kr. hvert eintak en allar fjórar bækurnar á 10.000 kr.
Arngrímur Jónsson, Brevis Commentarius de Islandia. Stutt greinargerð
um Ísland. Einar Sigmarsson annaðist útgáfuna. Rv. 2008.
Arngrímur Jónsson, Crymogæa. Þættir úr sögu Íslands. Jakob
Benediktsson þýddi og samdi inngang og skýringar. Helgi Þorláksson sá um
útgáfuna. Rv. 1985.
Hans Peder Resen, Íslandslýsing. Jakob Benediktsson þýddi og
samdi inngang og skýringar. Rv. 1991.
Daniel Vetter, Ísland: ferðasaga frá 17. öld. Hallfreður Örn
Eiríksson og Olga María Franzdóttir þýddu ; Helgi Þorláksson sá um
útgáfuna. Rv. 1983
Smárit Sögufélags: 1500 kr. hvert eða 3 bækur á 4.000 kr og 5 bækur á
6.000 kr.
Ferðadagbækur Magnúsar Stephensen 1807–1808.
Anna Agnarsdóttir og Þórir Stephensen sáu um útgáfuna. Útgáfuár: 2010.
190 s.
Pétur Eiríksson, Þýska landnámið. Útgáfuár: 2008. 188 s.
Kristín Jónsdóttir, "Hlustaðu á þína innri rödd" Kvennaframboð í
Reykjavík og Kvennalisti 1982-1987. Útgáfuár: 2007. 294 s.
Hildur Biering, Barnauppeldisins heilaga skylda. Barnavernd á fyrri
hluta 19. aldar. Útgáfuár: 2006. 150 s.
Patricia Pires Boulhosa, Gamli sáttmáli. Tilurð og tilgangur.
Útgáfuár: 2006. 132 s.
Járnsíða og Kristinréttur Árna Þorlákssonar. Haraldur
Bernharðsson, Magnús Lyngdal Magnússon og Már Jónsson tóku saman.
Útgáfuár: 2005. 220 s.
Guðmundur J. Guðmundsson, Á hjara veraldar. Saga norrænna manna á
Grænlandi. Útgáfuár: 2005. 140 s. Summary.
Opnunartími Sögufélags, Fischersundi 3, 101 Reykjavík
Mánudag 15 til 17.
Þriðjudag til föstudags 16-18.
Hægt er að leggja inn pantanir (sogufelag@sogufelag.is) og sækja seinna
eða fá pantanir sendar í pósti en þá bætist sendingarkostnaður við.
16.5.2011
Vorhefti Sögu 2011 komið út
Landshagir
á Íslandi, lauslæti og kynsjúkdómar, Gamli sáttmáli, miðaldasagnfræði og
rannsóknarstyrkir eru meginviðfangsefni vorheftis Sögu 2011. Hrefna
Róbertsdóttir ríður á vaðið með mikla grein um hagstjórnarstefnu
stjórnvalda og viðreisnaráform um Ísland á 18. öld í ljósi þróunar
ullarframleiðslu og handiðnaðar. Grein Hrefnu er byggð á viðamikilli
rannsókn hennar á efninu þar sem fléttað er saman greiningu á hugmyndum
og gögnum um ullarframleiðslu á þessu tímabili. Vilhelm Vilhelmsson
beinir hins vegar sjónum sínum að umræðum um lauslæti og frjálsar ástir
í Reykjavík við upphaf 20. aldar, einkum með hliðsjón af skrifum þeirra
Ingibjargar Ólafsson og Bríetar Bjarnhéðinsdóttur. Helgi Skúli
Kjartansson vekur svo upp umræðu um aldur Gamla sáttmála, sem hófst árið
2005 með útgáfu doktorsritgerðar brasilísku fræðikonunnar Patriciu Pires
Boulhosa. Magnús Lyngdal Magnússon svarar umfjöllun Sigurðar Gylfa
Magnússonar, um styrkúthlutanir til vísindastarfa, sem
birtist í grein hans í síðasta hefti. Þá birtir Saga erindi um Jón
Jóhannesson miðaldafræðing sem flutt voru á samkomu í tilefni
aldarafmælis hans sumarið 2009, og Viðar Pálsson skrifar ítardóm um
nýleg verk um konungsvald á miðöldum.
Landshagir á Íslandi, lauslæti og kynsjúkdómar, Gamli sáttmáli,
miðaldasagnfræði og rannsóknarstyrkir. Það er hrein tilviljun að öll
þessi viðfangsefni skuli á einn eða annan hátt tengjast þeirri
sögupersónu sem bæði prýðir kápu heftisins að þessu sinni, ásamt
eiginkonu sinni, og er viðfangsefni Spurningar Sögu. Ef til vill er sú
tilviljun ekki svo merkileg í ljósi þess hversu margföld þessi
sögupersóna er, bæði í fortíð og nútíð. Hún heitir Jón Sigurðsson, á
tvöhundruð ára afmæli nú í sumar og hefur frá upphafi 20. aldar ekki
aðeins verið óþrjótandi rannsóknarefni fræðimanna heldur pólitískt og
menningarlegt viðfangsefni.
Ritdómar og fregnir eru átta talsins og endurspeglar fjöldinn þó ekki á
nokkurn hátt umfang sagnfræðirannsókna síðustu tveggja ára, en vonandi
næst að gera flestum þeim sagnfræðiverkum sem komu út á síðasta ári skil
með útgáfu haustheftis 2011.
Sjá efnisyfirlit heftisins
-> hér
26.4.2011
Oflátungur á erlendri grundu
Þriðja og síðasta rannsóknarkvöld Félags íslenskra fræða á vormisseri
2011 verður haldið fimmtudaginn 28. apríl, kl. 20 í húsi Sögufélagsins,
Fischersundi 3 að loknum aðalfundi félagsins. Á rannsóknarkvöldinu
flytur Ármann Jakobsson, íslenskufræðingur, fyrirlestur sem hann nefnir
Oflátungur á erlendri grundu: Jórsalaferð Sigurðar konungs sem
sjónarspil.
5.4.2011
Rannsóknarkvöld
Annað rannsóknarkvöld Félags íslenskra fræða á
vormisseri 2011 verður haldið fimmtudaginn 7. apríl, kl. 20 í húsi
Sögufélagsins, Fischersundi 3. Þar flytur Soffía Guðný Guðmundsdóttir,
íslenskufræðingur, fyrirlestur sem hún nefnir Vindum, vindum vef
handrita: af fræðsluvef um íslensk miðaldahandrit og norræna
menningarsögu.
1.4.2011
Tilkynning frá Sögufélagi
Nú
um mánaðarmótin lætur Ragnheiður Þorláksdóttir að eigin ósk af störfum
hjá Sögufélagi eftir langt og farsælt starf. Á þessum tímamótum vill
stjórn félagsins fyrir hönd félagsmanna þakka henni fyrir vel unnin
störf í þeirra þágu í þau rúmlega þrjátíu ár sem félagið hefur notið
starfskrafta hennar. Stjórnin óskar henni velfarnaðar í framtíðinni.
Hús Sögufélags verður lokað frá 1. apríl til 26. apríl á meðan að gengið
verður endanlega frá tölvuvæðingu reksturs og bókhalds félagsins. Íris
Ellenberger, sagnfræðingur og doktorsnemi hefur tekið að sér að sinna
daglegri umsýslu fyrir félagið en bókhald og rekstur þess verður í
umsjón ReykjavíkurAkademíunnar og á ábyrgð Sólveigar Ólafsdóttur,
framkvæmdastjóra. Bókapantanir verða afgreiddar í gegnum eftirfarandi
netfang sogufelag@sogufelag.is
og opnunartími verslunar verður nánar auglýstur síðar. Öðrum
fyrirspurnum svarar forseti félagsins, Anna Agnarsdóttir (annaagn@hi.is).
13.12.2010
    
Spjallað við höfunda:
föstudaginn 17. des. kl. 17
Saga og sagnfræði eru meðal þess heitasta í bóklegri uppskeru ársins. Á
föstudaginn kemur hóar Sögufélag saman fríðum flokki höfunda til
óformlegrar samkomu um nýjustu bækurnar. Hér gefst færi á að taka
sagnfræðinga og höfunda nýrra sögulegra rita tali, ræða um sjónarmið
þeirra og bakgrunn verkanna, nálgun þeirra og efnistök.
Meðal þeirra sem verða á staðnum:
Anna Agnarsdóttir
og Þórir Stephensen,
Ferðadagbækur Magnúsar Stephensen 1807–1808.
Guðni Th. Jóhannesson,
Gunnar Thoroddsen. Ævisaga.
Sigrún Pálsdóttir,
Þóra biskups og raunir íslenskrar embættismannastéttar.
Sigurður Gylfi Magnússon,
Wasteland with Words. A social history of Iceland
Snorri Freyr Hilmarsson,
101 tækifæri.
Unnur Birna Karlsdóttir,
Þar sem fossarnir falla. Viðhorf til náttúru og vatnsaflsvirkjana á
Íslandi 1900–2008.
Þorgrímur Gestsson,
Mannlíf við Sund. Býlið, byggðin og borgin.
Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir,
Mörg eru ljónsins eyru.
Staður og stund:
Sögufélag, Fischersundi 3.
Föstudaginn 17. desember kl. 17–19.
Bækurnar verða á boðstólum á sanngjörnu verði.
Léttar veitingar gegn samskotafé.
Allir félagsmenn, sagnfræðingar og áhugamenn um sögu Íslands eru
velkomnir.
11.11.2010
Jólabækurnar í
Grjótaþorpinu
Í
notalegri bókaverslun Sögufélags í Fischersundi má kynna sér nýútkomnar
bækur um sögu og menningu þjóðarinnar og nýjustu fræðiritin á sviði
sagnfræði og tengdra greina. Meðal nýrra bóka sem þar er að finna á góðu
verði er verk dr. Unnar Birnu Karlsdóttur sagnfræðings, Þar sem
fossarnir falla. Náttúrusýn og nýting fallvatna á Íslandi 1900-2008.
Bókin er byggð á
ítarlegri rannsókn á umræðu um náttúru og vatnsorku á Íslandi og setur
íslenska náttúrusýn jafnframt í samhengi við þær stefnur og strauma í
vestrænni náttúrusýn sem skipta máli til að skilja þessa sögu. Tvær
meginspurningar eru hafðar að leiðarljósi. Annars vegar spurningin um
hvernig íslensk náttúrusýn þróaðist frá því um 1900-2008. Hins vegar
spurningin um hvaða þættir búa í náttúrusýn Íslendinga sem leiða til
þess að djúpstæður ágreiningur hefur verið um vatnsaflsvirkjanir á
síðustu árum.
Þetta aðgengilega fræðirit er skyldulesning allra sem áhuga hafa á
umhverfismálum og auðlindanýtingu og vilja móta sér upplýsta skoðun á
þessum málum.
Auk nýjustu ritanna má að vanda nálgast í bókaverslun Sögufélags fjölda
eldri rita um sögu og menningu, innihaldsríkar jólagjafir sem varpa
ljósi á sögu okkar og þar með samtíma.
Verslunin er opin mánudaga til fimmtudaga 14-18. Í jólamánuðinum verður
opnunartíminn lengri. Góð bílastæði eru steinsnar frá húsi Sögufélags í
bílastæðahúsi við Vesturgötu 7 (ekið inn um Mjóstræti).
5.11.2010
Aumastir
allra?
Kvöldfundur Sagnfræðingafélags Íslands um
starfsvettvang sagnfræðinga 10. nóvember 2010 kl. 20 í húsi Sögufélags,
Fischersundi.
Dagskrá:
20:00 - Már Jónsson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands:
Hvað geta sagnfræðingar?
20:15 - Súsanna Margrét Gestsdóttir, sögukennari við
Fjölbrautaskólann við Ármúla og kennari við menntavísindasvið Háskóla
Íslands: Sælt er víst sögu að kenna.
20:30 - Magnús Lyngdal Magnússon, sviðsstjóri á rannsókna- og
nýsköpunarsviði Rannís: Aldrei nóg að gera, eða hvað?
20:45 - Hrefna Róbertsdóttir, sviðsstjóri skjalasviðs
Þjóðskjalasafns Íslands: Fjölbreyttur starfsvettvangur sagnfræðinga á
skjalasöfnum og minjasöfnum.
21:00 - Kaffihlé
21:15 - Pallborðsumræður og spurningar
Fundarstjóri: Njörður Sigurðsson. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
16.10.2010
Aðalfundur
Aðalfundur Sögufélags verður haldinn laugardaginn 23.
október í húsi félagsins, Fischersundi 3 og hefst hann kl. 15:00
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kaffihlé.
Dr. Unnur Birna Karlsdóttir sagnfræðingur flytur fyrirlestur sem ber
heitið Náttúrusýn og virkjanir.
Í lok fundar verður boðið upp á léttar veitingar. Við hvetjum alla
félagsmenn til að fjölmenna.
Stjórnin
10.9.2010
Ný útgáfa af
Íslandi á 20. öld
Hið
vinsæla yfirlitsrit Helga Skúla Kjartanssonar um sögu lands og þjóðar á
20. öld er nú fáanlegt aftur í nýrri endurskoðaðri útgáfu Sögufélags.
Ritið kom fyrst út árið 2002 á hundrað ára afmæli félagsins og var þá
tilnefnt til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
--> Nánar um
bókina.
|