Gögn Sögufélags afhent Þjóðskjalasafni Íslands
Þjóðskjalasafn Íslands fagnar í dag, 3. apríl 2012, 130 ára afmæli. Við hátíðarathöfn af því tilefni verða gögn Sögufélags formlega afhent safninu til varðveislu. Síðustu misseri hefur verið unnið að flokkun þeirra þar og eru þau tilbúin áhugasömum til notkunar. Samtals eru skjölin um sex hillumetrar, bréf, fundargerðabækur, reikningar og fleira. Sögufélag hefur lengi notið góðvildar Þjóðskjalasafns og bætist nú við þakklæti fyrir að búa vel um söguleg gögn félagsins.

