Söguþing 7.-10. júní 2012
Skráning er hafin á 4. íslenska söguþingið sem haldið verður 7.-10. júní 2012. Sögufélag er meðal þeirra sem standa að þinginu. Nú þegar hafa um 90 fyrirlesarar tilkynnt þátttöku sína og settar hafa verið upp 20 málstofur. Allar upplýsingar er að finna á heimasíðu þingsins: akademia.is/soguthing. Ráðstefnugjald er 9.900 krónur og 4.900 fyrir háskólanema.

