Sögufélag 110 ára
Sögufélag er 110 ára í dag, stofnað 7. mars 1902. Stjórn félagsins ákvað að halda upp á þessi tímamót með því að hafa tímaritin Sögu (til 2006) og Nýja sögu í heild sinni aðgengileg á vefnum góða, timarit.is. Vart þarf að eyða orðum að því hve mikil búbót þetta er sagnfræðingum og öðru áhugafólki um liðna tíð. Njótið vel!
Markmið Sögufélags er að gefa út tímarit, heimildarit og annað efni um sagnfræði og söguleg efni, einkum um sögu Íslands. Félagsmenn Sögufélags eru þeir sem greiða áskriftarverð tímaritsins Sögu. Félagsmenn fá bækur félagsins með 10-20% afslætti. Skrifstofa félagsins er í Skeifunni 3b, 108 Reykjavík. Sími: 588 9060. Netfang: sogufelag@sogufelag.is.

