|
Árið 1991
keypti Sögufélagið núverandi húseign sína í Fischersundi af
Reykjavíkurborg. Áður hafði umhverfismálaráð Reykjavíkur lagt til að húsið
yrði varðveitt vegna götumyndarinnar við Fischersund. Austurendi hússins
var byggður árið 1894 en hann hýsir nú fundarsal félagsins. Þar sem
nú er gengið inn í húsið var áður skemma sem reist var við Norska bakaríið
árið 1878 en var síðar breytt í kökubúð árið 1901. Þriðja hluta hússins
var síðan bætt við um miðja síðustu öld.
|